Persónuvernd og skilmálar
Síðast uppfært 24. júlí 2026.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga á Flugusafninu er Agnar Einarsson, rekstraraðili Flugusafnsins.
Fyrirspurnir um persónuvernd eða meðferð gagna má senda á [email protected].
Hvaða gögn söfnum við?
Notandaaðgangur
Ef þú stofnar notandaaðgang geymum við notandanafn og netfang. Lykilorðið sjálft er ekki geymt læsilegt heldur sem öruggt lykilorðshash. Við geymum einnig þær flugur, veiðistaði, einkunnir, athugasemdir og aðra virkni sem þú velur að tengja við aðganginn þinn.
Notkun án innskráningar
Ef þú ert ekki skráð(ur) inn heldur setukaka (session cookie) utan um uppáhalds flugur, Veiðistaðirnir mínir, Fluguboxið mitt og einkunnir sem þú gefur. Upplýsingarnar eru tengdar handahófskenndu setuauðkenni en ekki beint við nafn eða netfang — setuauðkenni og tengd gögn teljast þó ekki endilega fullkomlega nafnlaus gögn.
Sama setukaka er einnig sett við fyrstu síðuskoðun til að telja einstakar heimsóknir í samanteknum umferðartölum (sjá „Notkunartölfræði og tæknilegar skrár" hér að neðan) — hún er því ekki eingöngu sett þegar þú notar virkni sem krefst innskráningar. Vafrakakan sjálf rennur út í síðasta lagi eftir 14 daga.
Innsent efni
Flugusafnið býður notendum meðal annars að senda inn nýjar flugur, leiðréttingar, tillögur um tengsl flugna og veiðistaða og aflaskráningar.
Það fer eftir tegund innsendingar hvaða upplýsingar eru birtar opinberlega. Áður en innsending er staðfest skal koma skýrt fram hvaða upplýsingar kunna að birtast, svo sem nafn höfundar, lýsing, mynd, athugasemd, veiðistaður eða staðsetning aflaskráningar.
Almenn samskipti, tæknilegar villutilkynningar, höfundarréttarmál og persónuverndarerindi sem berast í gegnum Hafðu samband-síðuna eru ekki birt opinberlega.
Samskipti
Ef þú hefur samband geymum við þær upplýsingar sem þú sendir, svo sem nafn, netfang, efni erindis, skilaboð og viðhengi, eftir því sem nauðsynlegt er til að svara og vinna úr erindinu.
Vafrakökur
Flugusafnið notar aðeins fyrstu-aðila vafrakökur — engar auglýsingakökur, engin Google Analytics, Meta Pixel eða önnur utanaðkomandi rakningarþjónusta er notuð, og kökurnar eru ekki notaðar til að byggja upp auglýsingaprófíl eða fylgjast með þér á milli óskyldra vefsvæða.
Sama setukaka er notuð bæði fyrir virkni sem þú velur sjálf/ur að nota (innskráning, uppáhald, einkunnir, Fluguboxið mitt, Veiðistaðirnir mínir) og til að telja einstakar heimsóknir í eigin, sjálfhýstri umferðartölfræði — hún er því sett strax við fyrstu síðuskoðun, ekki eingöngu þegar þú notar ofangreinda virkni. Sjá nánar í „Notkunartölfræði og tæknilegar skrár" hér að neðan.
Notkunartölfræði og tæknilegar skrár
Við höldum einfalda, sjálfhýsta notkunartölfræði (síðuflettingar, tilvísunarslóð, tímasetning og setuauðkenni sem tengist gestum) til að skilja hvernig vefurinn er notaður og bæta efni og virkni hans. Engin IP-tala, vafrafingrafar eða utanaðkomandi rakningarþjónusta er hluti af þessari tölfræði. Gögnin eru ekki seld eða deilt með þriðja aðila.
Síðuflettingar eru varðveittar í að hámarki 13 mánuði (395 daga). Smellir á verslunartengla (sjá næsta kafla) eru ekki felldir undir sömu sjálfvirku hreinsun eins og er.
Vefþjónar og hýsingaraðili kunna einnig að skrá tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu, tíma beiðni, vafra og villuboð, vegna öryggis, bilanagreiningar og reksturs — þessar skrár eru aðskildar frá notkunartölfræði vefsins sjálfs.
Verslunartenglar
Þegar þú smellir á „Skoða" hjá „Fáanleg í eftirfarandi verslunum" er smellurinn skráður í samanteknu formi (hvaða fluga, hvaða verslun, tímasetning, og setuauðkenni/notandi ef þú ert skráð(ur) inn) áður en þér er vísað áfram á vefsíðu viðkomandi verslunar.
Skráningin er notuð til að meta gagnsemi tenglanna og sýna verslunum hversu mikla umferð tenglar frá Flugusafninu skila. Engin IP-tala er skráð með smellinum. Smellurinn er ekki tengdur við nafn þitt eða netfang og er ekki notaður til auglýsinga eða til að fylgjast með þér á öðrum vefsvæðum.
Staðsetning á kortum
Á kortasíðum getur þú valið að heimila vafranum að nota staðsetningu tækisins til að sýna hvar þú ert á kortinu. Staðsetning er aðeins sótt eftir að þú hefur veitt heimild í vafranum, og er eingöngu notuð tímabundið til að sýna eða miðja kortið — hún er ekki send til bakenda Flugusafnsins né vistuð í eigin gagnagrunni.
Kortagögn (kortaflísar) eru sótt beint úr vafranum frá utanaðkomandi þjónustuaðilum: OpenStreetMap, Esri (ArcGIS) og OpenTopoMap. Við það geta þessir þjónustuaðilar fengið venjulegar tæknilegar upplýsingar, svo sem IP-tölu og hvaða kortaflísar eru sóttar — sýnda kortasvæðið getur gefið vísbendingu um grófa staðsetningu. Flugusafnið sendir ekki nákvæm staðsetningarhnit sérstaklega til þessara þjónustuaðila.
Ef þú skráir afla og velur staðsetningu á korti er sú staðsetning send til og vistuð í gagnagrunni Flugusafnsins sem hluti af aflaskráningunni — sjá „Innsent efni" hér að ofan.
Þjónustuaðilar
Flugusafnið selur ekki persónuupplýsingar. Upplýsingar kunna þó að vera unnar af þjónustuaðilum sem eru nauðsynlegir fyrir rekstur vefsins:
- Hýsing og skráageymsla (myndir): DigitalOcean (App Platform og Spaces).
Grundvöllur vinnslu
Vinnsla upplýsinga sem er nauðsynleg til að stofna og reka notandaaðgang eða veita virkni sem notandi óskar eftir byggist á því að veita viðkomandi þjónustu.
Öryggis- og rekstrarskráning og einföld notkunartölfræði byggist á lögmætum hagsmunum Flugusafnsins af öruggum rekstri, bilanagreiningu og umbótum á vefnum.
Birting efnis sem notandi sendir inn byggist á beiðni notandans og þeim innsendingarskilmálum sem kynntir eru áður en efnið er sent inn.
Notkun staðsetningar tækis fer aðeins fram þegar notandinn velur sjálfur að nota staðsetningarvirkni og veitir heimild í vafranum.
Varðveisla upplýsinga
Upplýsingar um notandaaðgang eru varðveittar á meðan aðgangurinn er virkur. Ef þú eyðir aðgangnum þínum er upplýsingum sem tengja virkni við aðganginn eytt eða þær aftengdar frá persónuauðkennum, nema varðveisla sé nauðsynleg vegna lagaskyldu eða réttmætra krafna.
Aflaskráningar, einkunnir, athugasemdir og annað birt framlag geta áfram verið sýnileg eftir eyðingu aðgangs, en verða ekki lengur tengd við nafn þitt eða virkan aðgang, nema þú óskir sérstaklega eftir að efnið verði einnig fjarlægt — sjá innsendingarskilmála.
Setugögn, samskipti, tæknilegar skrár og notkunartölfræði eru varðveitt samkvæmt þeim tímamörkum sem tilgreind eru í viðkomandi köflum hér að ofan.
Réttindi þín
Þú getur eftir því sem við á óskað eftir:
- Aðgangi að persónuupplýsingum sem við höfum um þig.
- Leiðréttingu rangra eða ófullnægjandi upplýsinga.
- Eyðingu upplýsinga.
- Takmörkun vinnslu.
- Að mótmæla vinnslu.
- Afriti eða flutningi eigin gagna á tölvutæku formi.
Beiðnir má senda á [email protected] eða á Hafðu samband-síðunni. Nauðsynlegt kann að vera að staðfesta hver sendir beiðnina áður en upplýsingar eru afhentar eða þeim eytt.
Þú getur einnig eytt notandaaðgangnum þínum undir Stillingar.
Hafðu samband
Spurningar um persónuvernd, gögn eða réttindi notenda má senda á [email protected] eða á Hafðu samband-síðunni.