Veyatie Black

Votfluga Höfundur: Bob Wyatt

Veiðimaðurinn, rithöfundurinn, fluguhnýtarinn, ljósmyndarinn og listmálarinn Bob Wyatt nefndi þessa flugu eftir Veyatie vatni í Skotlandi, vatni sem hann hafði töluverða reynslu af. Flugur Bob eru af ýmsum gerðum, eins og sjá má á síðu Hans Weilenmann, Flytier’s Page og margar þeirra hnýtti Bob á þeim árum sem hann eyddi á Nýja Sjálandi, en ekki þessa.

Flugan sækir um margt fyrirmynd sína, nokkuð augljóslega, til flugna eins og Kate McLaren og annarra hefðbundinna skoskra votflugna. Það sem e.t.v. skilur hana helst frá þeim er að uppskrift Bob gefur hnýturum töluvert frjálsar hendur í vali á hráefni. Hér að ofan hef ég valið að halda mig við það efni sem Bob taldi fyrst fram í en Davie McPhail fór örlítið aðra leið í myndbandinu hér að neðan.

Hér að neðan má sjá hvernig Davie McPhail hnýtir þessa flugu.

Afbrigði (1)