Flugur / Perdigon

Perdigon

Púpa

eftir Spænska landsliðið

Spænsk keppnispúpa, þróuð á hröðum ám Norður-Spánar og kennd við spænska landsliðið fremur en einn ákveðinn hnýtara. Nafnið þýðir „högl" og lýsir tilganginum: flugan á að sökkva hratt og beint.

Uppbyggingin er strípuð niður í það allra nauðsynlegasta: tungsten kúla, grannur búkur úr þræði eða slitnu flossi, oft rifbönd og litaður hotspot við kúluna og skott úr coq de León. Engir fætur, ekkert hackle og ekkert dubbing. Yfir búkinn kemur svo UV-resin sem gefur hart, slétt og endingargott yfirborð.

Hún líkir ekki eftir neinu sérstöku. Kosturinn er sökkhraðinn: í straumvatni nær hún botni á broti af þeim tíma sem hefðbundin púpa þarf, og hentar því sérlega vel sem punktfluga.

Afbrigði (2)

Velkomin(n)!

Skráðu þig inn til að vista uppáhalds flugur og veiðistaði.

Um okkur Hjálp

Leggja til