Mýpúpa
Púpa
Höfundur: allir og enginn
Þegar lesendur reka augun í þessa púpu er lang líklegast að flestum verði á orði; Nei, þetta er ekki mýpúpan.
Það eru til svo mörg afbrigði af því sem menn kvitta í veiðibækurnar sem Mýpúpa að það væri örugglega efni í sérstakt blogg, heila vefsíðu, að birta myndir af þeim öllu.
En, svona getur kvikindið litið út í einfaldri mynd. Ekkert rugl, bara vinyl rip, svartur hnýtingarþráður og svart dub. Svona hefur hún gefið mér og svona er hún til í nokkrum stærðum í boxinu hjá mér.
Svo má líka leika sér með vinyl, vefja öngulinn með t.d. rauðum þræði og leyfa að grisja á milli vafninga af vinylnum. Þá getur kvikindið litið einhvern vegin svona út: