Kopar Moli
Púpa
Höfundur: Gísli J. Þórðarson
Það er alltaf spurning hvort maður geti sagt að koparflugur hafi sótt töluvert í sig veðrið síðustu ár, þar sem ein fyrsta púpan var að stofninum til úr kopar. En með auknum áhuga á koparflugum, þá hefur útgáfum þeirra og útfærslum fjölgar verulega frá því ég hóf mínar fluguhnýtingar.
Þekkt erlend fluga í þessum stíl er vitaskuld Copper John sem finnst í ótal afbrigðum, en íslenska koparflugan er vitaskuld Kopar Moli eftir Gísla Jón Þórðarson.
Koparflugur hafa gefið vel í vatnaveiði og andstreymis í straumi.
Flestar koparflugur eru tiltölulega einfaldar í byggingu og efnisvalið hreint og beint; öngull, koparvír, thorax-efni og kúla, ef vill.