Einkunn
Súkkulaðifrauð
Þannig að því sé haldið til haga, þá er engin sérstakur höfundur að þessari flugu. Hún er til í ótal afbrigðum og hægt að finna hana undir næstum jafn mörgum heitum á netinu. Ástæðan fyrir því að hún birtist hér er einfaldlega til að gefa smá innsýn í það sem leynist í ‘standard’ fluguboxinu hjá undirrituðum.
Þetta er í raun afar einfaldur buzzer sem á að líkja eftir brúnni klekju (e. emerger) ýmissa flugna sem hangir í yfirborði vatnsins. Eini munurinn á þessari flugu og hefðbundum buzzer er að til að létta undir með klekjunni þar sem hún bíður þess að komast upp á yfirborðið, þá hefur smá
frauði verið bætt við haus hennar.
Undirritaður hefur haft þessa flugu í stærðum #14 og #16 en náfrænku hennar sem ætlað er að líkja eftir klekju stóru toppflugunnar, hef ég hnýtt svarta og silfraða í stærð #10 og #12 og til aðgreiningar kallað hana Lakkrísfrauð.
Hér að neðan má sjá eitt af ótalmörgum myndböndum sem er hægt að finna á veraldarvefnum af sambærilegri flugu.
Fiskitegundir og krókastærðir
Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.