Einkunn
March Brown
Þrátt fyrir að vera ein af ‘gömlu’ flugunum hefur March Brown ekki verið neitt afskaplega vinsæl hin síðari ár hjá okkur á Fróni, sem er í sjálfu sér einkennilegt því hér er á ferðinni fluga sem á ættir sínar að rekja í silungsveiði Hálanda Skotlands og fór fyrst á prent 1886 í flugubíblíu Pritt’s, North Country Flies. Fluga sem hefur alla tíð gefið vel í vatnaveiði á Bretlandseyjum og víðar.
Áhugi minn á þessari flugu vaknaði að ráði í sumar þegar ég fikraði mig áfram með áberandi gylltar útgáfu þekktra flugna eins og Pheasant Tail og fleiri, þannig að ég ákvað að koma uppskrift af henni
fyrir á blogginu og þá sérstaklega þegar snillingurinn Davie McPhail setti myndband af henni á YouTube.
Hér setur Davie McPhail toppinn á kökuna með því að hnýta full-klædda March Brown, með skotti, væng og kraga, glæsileg fluga.
Fiskitegundir og krókastærðir
| Fiskitegund | Krókastærðir |
|---|---|
| Bleikja | 10,12,14,16 |
| Urriði | 10,12,14 |