Loch Ordie
Tegund Votfluga
Höfundur óþekktur

Einkunn

Almenn Engin einkunn

Loch Ordie

Loch Ordie er eitt af fjölmörgum heiðarvötnum Skotlands og flest þeirra hafa eignast flugur sem skírðar eru í höfuðið á þeim. Loch Ordie er engin undantekning frá þessu og hér gefur að líta þá flugu. Upprunalega var þessi fluga hnýtt í afar einfaldri útgáfu, aðeins þrjár mislitar hænufjaðrir vafðar í hringvöfum fram eftir legg önguls og síðan svartur haus. Á síðari árum hafa sprottið fram ýmsar útgáfur og auknar af þessari flugu, sumar með búku undir hringvöfunum, jafnvel hreinræktaðar straumflugur með gylltum búk og skotti. Skemmtilegasta útfærslan sem ég hef séð er túpa sem sögð er hafa

Fiskitegundir og krókastærðir

Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.