Einkunn
Killer Bug
Sumar flugur eru einfaldlega svo einfaldar að það tekur því ekki að setja inn efnislista. Killer Bug er einmitt ein þessara flugna. Haft er eftir höfundi hennar, Frank Sawyer að honum nægðu fimm flugur til að geta veitt alls staðar. Auðvitað var Pheasant Tail ein þessara ásamt Killer Bug.
Ég hef lúmskan grun um að það séu frekar fáir veiðimennirnir hér á Íslandi sem þekki eða hafi prófað þessa flugu Sawyers, sem er í raun grátlegt því hún er virkilega veiðin þessi hnellna fluga. Uppskriftin hér að neðan er skv. klippu Davie McPhail en ég hvet lesendur til að skoða einnig myndband Oliver
Edwards sem er í raun nær því sem Sawyer gerði á sínum tíma.
Að lokum; smá vísbending umefnisvalið. Þó Sawyer hafi notað Chadwicks 477 ullargarn, þá virkar íslensk ull frábærlega í þessa flugu, helst Létt Lopi sem losaður er sundur í þættina og spunninn rangsælis eftir að hann hefur verið festur niður, eða þá einband.
Fiskitegundir og krókastærðir
Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.