Einkunn
Gullbrá
Ef einhver er að leita að auðhnýttri, gjöfulli flugu í hvað fisk sem er, þá er þetta flugan. Gullbrá hefur glapið bleikjur í hrönnum, urriða í öðru eins magni og laxar hafa líka litið við henni og verið landað. Það eru einhver ár síðan ég setti þessa flugu fyrst í boxið mitt og þar á undan hafði ég sjálfur gert ýmsar tilraunir með Veniard UV Straggle í búk á flugum, en aldrei tekist jafn vel til eins og höfundi Gullbrár, Jóni Inga Kristjánssyni.
Flugan er afar auðhnýtt og heilagleiki hennar er ekki meiri en svo að höfundurinn hefur stundum gripið það efni í hana sem hendi er næst á
hnýtingarborðinu og það virðist ekkert koma niður á veiðni hennar. Flugan hefur getið sér gott orð á Arnarvatnsheiði, í Veiðivötnum og eiginlega hringinn í kringum landið og öllum mögulegum veiðistöðum þar á milli.
Flugurnar sem hér koma fyrir sjónir eru hnýttar af höfundinum sjálfum fyrir FOS.IS og þær eru nú fyrirmyndir þeirra sem ég hnýti sjálfur.
Fiskitegundir og krókastærðir
Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.