Ethel the Streaking Caddis
Tegund Þurrfluga
Höfundur ókunnur

Einkunn

Almenn Engin einkunn
Bleikja Engin einkunn
Urriði Engin einkunn

Ethel the Streaking Caddis

Einhverra hluta vegna hefur þessi bráð skemmtilega þurrfluga farið hamförum í netheimum undanfarið árið. Margir hafa reynt sig við hnýtingarmyndbrot af henni, en fáum hefur tekist eins vel til og Davie McPhail þegar hann hafði hendur í elgshári og hnýtti þessa flugu fyrir framan myndavélina. Flugan er nokkuð hefðbundin m.v. flugur úr elgs- og hjartarhárum og hefur gefið einstaklega vel þar sem vorflugan er á kreiki.

Af eigin reynslu get ég fullyrt að þessi fluga er alls ekki eins erfið í hnýtingu eins og ætla mætti, sérstaklega þegar maður hefur farið nokkrum sinnum yfir myndband Davie.

Fiskitegundir og krókastærðir

FiskitegundKrókastærðir
Bleikja 14
Urriði 14