Einkunn
Dunnigan’s Clearwater Emerger
Það þarf ekki alltaf reynda fluguhnýtara til að setja saman flugu sem slær rækilega í gegn. Casey Dunnigan, höfundur þessarar flugu, hóf ekki fluguveiðar fyrr en árið 2007 en varð samstundis heltekinn af sportinu. 2010 var hann við veiðar í Colorado og varð vitni að töluverðu klaki grárra mýflugna og var í stökustu vandræðum með að velja flugu sem líktist þeim nægjanlega. Þegar heim var komið, settist hann niður og hnýtti þessa flugu.
Hvernig flugan rataði síðan á markaðinn fylgir ekki sögunni, en hún komast fljótlega í hóp söluhæstu flugna vestanhafs. Þetta er tiltölulega einföld fluga að
hnýta og litur hennar sker sig skemmtilega úr þeim svörtu og brúnu mýflugueftirlíkingum sem hafa verið ráðandi.
Fiskitegundir og krókastærðir
Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.