Einkunn
Diawl Bach
Þegar það kemur að flugum sem bitist hefur verið um, þá dettur mér ósjálfrátt hin velska Diawl Bach í hug. Þýðing úr velsku yfir á íslensku gæti verið Skolli litli, en á enska tungu hafa menn snarað heiti hennar yfir í Welsh Devil, Little Devil eða þá jafnvel Red Devil og vísa þá til upphaflega haussins sem hún skartaði, sem var jú rauður.
Þegar höfundar þessarar flugu er getið, þá koma margir til greina, en einn þeirra hefur þó oftast komið fyrir í hnýtingarbókum og það er Wyndham Davies frá Wales. Ég læt það liggja á milli hluta hvort það sé rétt eða ekki, það hefur ekki þurft höfund
flugunnar til að skapa álitamál um hana hingað til, flugan sjálf hefur verið fullfær um það.
Eftir því sem ég kemst næst, þá var aðeins haus flugunnar rauður í upphafi og Peacock búkurinn styrktur með koparvír. Síðari útgáfur hafa orðið snöggtum skrautlegri á að líta; búkvöf út rauðu holographic eða hefðbundu tinsel, marglitir kúluhausar og í sparifötunum skartar hún Jungle Cock kinnum. Allt eru þetta skemmtileg afbrigði og væntanlega alls ekki til tjóns, en eftir stendur að upprunalega var flugan heldur rengluleg og hógvær á að líta, ef undan er skilinn rauði hausinn.
Hér gefur að líta David Cammiss hnýta (nánast) upprunalega útgáfu flugunnar:
Fiskitegundir og krókastærðir
Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.