Coronation Bucktail
Tegund Straumfluga
Höfundur Puget Sound Anglers / Roy A. Patrick

Einkunn

Almenn Engin einkunn

Coronation Bucktail

Það eru ekki margar flugur sem eins mikil rannsóknarvinna hefur verið lögð í eins og þessa. Puget Sound Anglers, sem er félagsskapur veiðimanna og starfar á norðanverðum Olympic skaga, rétt vestan við Seattle, lagði í töluverða rannsóknarvinnu á sjötta áratug síðustu aldar á fæðu Coho Kyrrahafslaxins sem gengur í árnar á þessu svæði.

Afraksturinn af vinnu þessa hóps var margþættur, m.a. öflugt starf sem snéri að umhverfivernd (langt á undan sinni samtíð), vernd sjógöngustofna, fiskirækt og rannsóknir á almennum lífsskilyrðum laxfiska á svæðinu. Skynsamleg nýting fiskistofna var leiðarljós

Fiskitegundir og krókastærðir

Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.