Cormorant
Tegund Votfluga
Höfundur óþekktur

Einkunn

Almenn Engin einkunn

Cormorant

Cormorant, eða Skarfurinn er ekki flókin fluga og oft verið vísað til hennar sem ágætis fluga fyrir byrjendur (eða örlítið lengra komna) í hnýtingum. Það kemur ekki oft fyrir að ég rambi á þessa flugu í boxum veiðimanna hér á landi, en kemur þó fyrir. Raunar er það nú svo að heiti flugunnar er notað í dag sem nokkurs konar tegundaheiti á flugum, líkt og Buzzer sem nær yfir ótilgreindan fjölda flugna.

Lengi vel var þessi fluga eignuð Graham nokkrum Pearson, en hið rétta er víst að hann gaf henni bara nafnið eftir að hafa séð hana í boxi ónefnds þátttakanda í unglingariðli Alþjóðlegu ensku

Fiskitegundir og krókastærðir

Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.

Fleiri afbrigði af Cormorant