Blue Quill – þurrfluga
Tegund Þurrfluga
Höfundur ókunnur

Einkunn

Almenn Engin einkunn
Bleikja Engin einkunn
Urriði Engin einkunn

Blue Quill – þurrfluga

Eftirlíking dægurflugunnar og með þeim betri ef mér leyfist að segja sem svo. Hefur verið viðloðandi flugubox veiðimanna svo lengi sem elstu menn muna.

Einhverra hluta vegna hafa not hennar hér á Íslandi verið takmörkuð í gegnum tíðina en hin síðari ár hefur hún sótt í sig veðrið, e.t.v. með auknum áhuga innlendra veiðimanna á fluguboxum þeirra erlendu sem heimsækja Ísland og gera góða veiði.

Fiskitegundir og krókastærðir

FiskitegundKrókastærðir
Bleikja 10,12,14,16
Urriði 10,12,14