Blob
Tegund Votfluga
Höfundur Óþekktur

Einkunn

Almenn Engin einkunn

Blob

Hér er á ferðinni fluga sem notið hefur mikillar hylli erlendis síðustu 30 árin og víða gert góða hluti. Fyrst varð vart við hana við Rutland vatn, skammt austan Leicester á Englandi um og eftir 1990. Ekki er alveg ljóst hver sé höfundur flugunnar, ýmsar sögur á kreiki og mismunandi eftir því hvort menn elska eða hata þessa flugu. Þeir sem sameina hvoru tveggja, elska að hata hana, eru gjarnan þeir sömu sem elska að hata Squirmito og segjast vera með höfund Blob alveg á hreinu; Skrattinn sjálfur hafi skitið henni. Þeir sem einfaldlega elska hana virðast ekki geta komið sér saman um höfundinn

Fiskitegundir og krókastærðir

Engin fiskitegund hefur verið skráð fyrir þessa flugu. Þegar upplýsingar vantar er ekki útilokað að flugan virki á fleiri tegundir.

Fleiri afbrigði af Blob