Buzzer
Tegund Púpa

Einkunn

Almenn Engin einkunn
Bleikja Engin einkunn
Urriði Engin einkunn

Buzzer

Hér er ekki um einhverja eina flugu að ræða, heldur flóru af flugum sem eiga í 95% tilfella allt sameiginlegt. Svartur er hann trúlega einhver öflugastur buzzera, þ.e. flugna sem apa eftir púpustigi mýflugunnar. Þessi fluga er afskaplega einföld í hnýtingu; þráður, vír, kinnar og lakk. Ef þú vilt vera örlátur þá getur þú bætt við kúluhaus.

Þegar ég byrjaði fluguveiðar fannst mér ótrúlegt að þetta litla kvikindi gæti veitt eitthvað þannig að ég lét alveg eiga sig að prófa hana. En svo lærir lengi sem lifir og þegar ég gaf henni sjéns í upphafi vertíðar (kalt vor) þá sannaði hún sig fyllilega

Fiskitegundir og krókastærðir

FiskitegundKrókastærðir
Bleikja 10,12,14,16
Urriði 10,12,14

Fleiri afbrigði af Buzzer