Einkunn
Black & Olive Woolly Bugger
Afbrigði af Woolly Bugger
Þetta afbrigði af Woolly Bugger er hnýtt með svörtu marabou-skotti sem gefur flugunni mjúkar og líflegar hreyfingar í vatninu. Tveir silfurlitaðir holographic flash-strimlar liggja meðfram skottinu og gefa frá sér ljósblik sem getur vakið athygli
fisks, sérstaklega þegar flugan er dregin inn og skiptir örlítið um hraða.
Búkurinn er gerður úr ólífugrænu chenille og yfir hann er vafin ólífugræn fjöður. Rauður 0,2 mm vír er vafinn yfir búkinn, bæði til að styrkja fluguna og gefa henni skýr litaskil. Svartur hnýtingarþráður myndar einfaldan svartan haus framan á flugunni.
Samsetningin af dökku skotti, ólífugrænum búk, silfurlituðu flashi og rauðum vír gerir fluguna bæði náttúrulega og örlítið ögrandi. Hún getur líkt eftir smáfiski, blóðsugu eða öðru vatnalífi, en lífleg hreyfing marabou-skottsins er einn helsti styrkleiki hennar.
Sú inndráttaraðferð sem skilaði árangri í Elliðavatni var langt og hægt tog með stönginni eða línuhendinni aftur að mjöðm. Í lok hvers togs var bætt við stuttu og hraðara togi framhjá mjöðminni. Hraðabreytingin í lok hreyfingarinnar fær fluguna til að taka snöggt viðbragð, flashið blikkar og marabou-skottið dregst saman áður en það opnast aftur í pásunni. Þetta getur líkt eftir smáfiski eða annarri bráð sem syndir rólega en reynir síðan skyndilega að flýja.
Flugan gaf góð viðbrögð í Elliðavatni síðla kvölds og skilaði nokkrum tökum og lönduðum fiskum. Hún hentar því vel sem leitarfluga þegar veiðimaður vill veiða yfir stærra svæði með hægum inndrætti, en nota stutta hraðaaukningu til að kalla fram töku.
Fiskitegundir og krókastærðir
| Fiskitegund | Krókastærðir |
|---|---|
| Urriði | 8,10,12 |