Einkunn
BAB – Babbinn – Kibbi
Hér er á ferðinni fluga, ekki einhöm. Margir þekkja hana sem Kibba, aðrir sem Babbann og svo þekkir einstaka maður hana undir upprunalegu nafni sínu; BAB sem hún var skírð í snarhasti árið 2000 í höfuðið á höfundi sínum.
Eins og sjá má er þetta göldrótt fluga með eindæmum, einföld og bráðdrepandi eins og margar veiðibækur á Íslandi sanna. Höfundur hennar, Björgvin A. Björgvinsson notaði hana fyrst opinberlega í Íslandsmótinu í silungsveiði árið 2000, en þá hafði hann þegar reynt hana frá árinu 1996 í nokkrum útfærslum.
Úr sömu ættkvísl flugna má nefna Amalíu Þórs Nielsen og fluguna hans
Sveins Þórs, Matta sem er að vísu með roðavafning í vínilnum en sver sig alveg í ættina.
Ívar í Flugusmiðjunni setti saman stutt kennslumyndband sem við látum fylgja hér með:
Fiskitegundir og krókastærðir
| Fiskitegund | Krókastærðir |
|---|---|
| Bleikja | 10,12,14,16 |
| Urriði | 10,12,14 |